Erlent

Talið að hjól hafi brotnað undan fremsta vagninum

Mynd/AP

Talið er að neðanjarðarlestinni, sem fór út af sporinu í Valencia á Spáni í gær, hafi verið ekið of hratt og að hjól hafi brotnað undan fremsta vagninum. Í það minnsta 41 fórst og 47 slösuðust. Slysið varð á annatíma í hádeginu þegar lestin ók frá lestarstöðinni. Að sögn vitna var lestin á miklum hraða og þegar hjól brotnaði unmdan henni, valt hún á hliðina. Ættingjar farþeganna söfnuðust saman í dómshúsinu í Valensía eftir slysið í von um að fá vitneskju um afdrif ástvina sinna. Mikil sorg ríkir í borginni en þetta er eitt versta lestarslys í sögu Spánar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×