Ráðherraskipan í Írak samþykkt 20. maí 2006 10:30 Fólk bíður frétta af ættingjum sínum og ástvinum fyrir utan sjúkrahús í Bagdad í morgun. MYND/AP
Íraska þingið samþykkti í morgun skipan nýrrar þjóðstjórnar í landinu. Vonir eru bundnar við að henni takist að lægja öldurnar þar. Ofbeldisverkum virðist ekki ætla að fækka en minnst 19 féllu og um 60 særðust í sprengjuárás í Bagdad í morgun. Þingmenn komu saman til fundar í morgun en Nouri al-Maliki, verðandi forsætisráðherra, kynnti ráðherralista sinn í gær. Um er að ræða þjóðstjórn sjía, súnnía og kúrda. Það er þó ljóst að erfitt verk bíður verðandi forsætisráðherra þar ekki hefur tekist að komast að samkomulagi um skipan í embætti varnar- og innanríkisráðherra. Leiðtogar fylkinganna munu því fyrst um sinn skiptast á að fara fyrir þeim ráðuneytum. Súnníar, sem eru í minnihluta, vilja fá varnarmálaráðuneytið sem stjórnar hernum en sjíar, sem eru í meirihluta, vilja fá innanríkisráðuneytið sem stýrir lögreglunni. Bandarísk stjórnvöld binda vonir við að nýrri stjórn takist að lægja öldurnar í landinu og fækka ofbeldisverkum svo hægt verði að undirbúa brotthvarf Bandaríkjahers frá Írak. Ljóst er að ofbeldisverkum fækkar ekki og ný stjórn hefur ærið verk fyrir höndum. Að minnsta kosti 19 féllu og hátt í 60 særðust í sprengjuárás í hverfi sjía í Bagdad í morgun. Þar höfðu verkamenn safnast saman í leit að vinnu.
Erlent Fréttir Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Lögreglan lýsir eftir Andra Snæ Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira