Erlent

41 maður handtekinn

Lögreglumenn víða um Evrópu handtóku á sunnudag 41 mann, eftir að ítalska lögreglan kom upp um glæpahring þar sem börn níu ára og eldri voru keypt eða leigð af fátækum fjölskyldum í Búlgaríu. Lögregla telur að vel yfir 100 börnum hafi verið smyglað til ýmissa Evrópulanda.

Að sögn lögreglu var flestum börnunum kenndur vasaþjófnaður, þó eitthvað hafi verið um kynlífsþrælk­un á þeim líka.

Mennirnir, sem allir eru Búlgarar, voru handteknir á Ítalíu, í Búlgaríu, Þýskalandi og Austurríki. Jafnframt er verið að rannsaka aðild 75 manns til viðbótar að málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×