Ræða viðbrögð við kjarnorkuáætlun Írans 24. maí 2006 10:45 Þúsundir Asera mótmæltu myndbirtingum sem þeir sögðu níð gegn aserska þjóðflokknum.
Löndin fimm sem hafa fastasetu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna funda í dag með fulltrúum Þýskalands til að ræða viðbrögð við fastheldni Írana við kjarnorkuáætlun sína. Íbúar í Teheran biðja um að hugsanlegar refsiaðgerðir bitni ekki á almennum borgurum. Valdamestu lönd í Evrópu eru að leggja lokahönd á tillögu að aðgerðum gegn Íran, sem lögð verður fram í öryggisráðinu, ef Íranir þráast við að auðga úran. Tillagan er málamiðlun sem Rússar og Kínverjar eiga að geta sætt sig við, en þessi lönd hafa hingað til ekki viljað beita Írani refsiaðgerðum. Í tillögunni er hætt við að hóta árásum ef Íranir halda sig við kjarnorkuáætlun sína, en tillagan er hluti af stærra tilboði til Írana sem er ætlað að lokka þá til fylgispektar við Vesturveldin. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sakar hins vegar Bandaríkin og þau lönd sem fylgja þeim að málum um að kynda meðvitað undir kynþáttaóeirðum og ójafnvægi í Íran. Í ræðu sem hann hélt í hafnarborginni Khorramshahr í morgun sagði hann óvini Írans vita fullvel að ómögulegt væri fyrir þá að skaða Íran utanfrá. Ahmadinejad lokaði í gær dagblaði og rak ritstjóra þess fyrir að birta skopmynd sem snerist gegn Aserum í Norðvestur-Íran sem vakti hörð viðbrögð meðal Asera. Þetta var í fyrsta skipti síðan forsetinn komst til valda að dagblaði er lokað og þykir það benda til að stjórnvöld í Íran séu vör um sig og telji Bandaríkin muni reyna að kynda til ófriðar meðal minnihlutahópa í Íran.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Fleiri fréttir Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Sjá meira