Erlent

Íranar svara af fullum krafti, verði ráðist á landið

Íranar munu svara af fullum krafti, verði ráðist á landið. Þetta sagði æðsti klerkur landsins í gær. Utanríkisráðherra Bretlands, segir ekki koma til greina að ráðast á Írana vegna kjarnorkuáætlana þeirra en Bush Bandaríkjaforseti útilokar þó ekkert í þeim efnum. Ajatollah Ali Kameinei, æðsti leiðtogi Írans segir að hatur gegn Bandaríkjunum myndi aukast gríðarlega og að unnið yrði gegn þeim víðar í heiminum en þeir geta ímyndað sér, ráðist þeir á landið.

Fulltrúar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fá á morgun skýrslu Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar um viðbrögð Írana við kröfu ráðsins um að þeir hætti auðgun úrans. Hingað til hafa Íranar sagst staðráðnir í að nýta kjarnorku til að framleiða rafmagn fyrir iðnað og almenning. Það sé réttur hverrar þjóðar og vilji almennings í landinu.

Á kjarnorkuvopnum hafi þeir þó engan áhuga en gagnrýna þó harðlega að ekkert sé sagt við því að Ísraelar fái að framleiða slík vopn. Bandaríkjamenn, Bretar og Frakkar vilja refsa ráðamönnum í Tehran fyrir að óhlýðnast en Rússar og Kínverjar eru andvígir refsingum þrátt fyrir að Íranar hafi margfaldað framleiðslu á eldflaugum sem borið geta kjarnaodda að undanförnu. Straw utanríkisráðherra Bretlands sagði í gær að aldrei hefði komið til greina að ráðast á landið en þó væri mjög mikilvægt að fá Írana til að hætta við áætlanir sínar og bað um frekari stuðning Kínverja í málinu. Bush Bandaríkjaforseti segir þó ekki koma til greina að Íranar fái að framleiða úran sem notað er til framleiðslu á kjarnorkuvopnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×