Erlent

Hátt í 150 látnir eftir aurskriður á Filippseyjum

MYND/AP

Að minnsta kosti 146 manns eru látnir eftir að aurskriður féllu á Filippseyjum í kjölfar yfireiðar fellibylsins Durian yfir eyjarnar. Miklar rigningar fylgdu fellibylnum sem varð til þess að bæði aur og grjót rann niður hlíðar eldfjallsins Mayon og flæddi yfir tvö þorp við fjallið sem er suðaustur af höfuðborginni Maníla. Þá munu aurskriður hafa fallið á fimm þorp til viðbótar og er óttast að tala látinna kunni að hækka. Þetta er fjórði stóri fellibylurinn sem gengur yfir Filippseyjar á jafnmörgum mánuðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×