Erlent

Sakaðir um að nauðga börnum

Friðargæsluliðar SÞ hafa verið sakaðir um að beita börn kynferðislegu ofbeldi. Myndin tengist fréttinni ekki.
Friðargæsluliðar SÞ hafa verið sakaðir um að beita börn kynferðislegu ofbeldi. Myndin tengist fréttinni ekki. MYND/AP

Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna á Haítí og í Líberíu hafa verið sakaðir um að beita börn þar kynferðisofbeldi. Þetta kom fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC, í gær.

Bæði er um nauðganir og vændi að ræða og munu ungar stúlkur hafa sagt fréttamönnum BBC frá viðskiptum við friðargæsluliðana, sem kröfðust kynmaka í staðinn fyrir mat eða fé, sagði í fréttinni. Ráðamenn innan SÞ láta nú rannsaka ásakanirnar.

Á síðustu árum hefur komist upp um ýmislegt misjafnt meðal friðargæsluliða SÞ, svo sem barnaníðingahringur sem nokkrir þeirra stjórnuðu í Lýðveldinu Kongó og vændisrekstur í Kósóvó. Aðstoðarframkvæmdastjóri friðargæslu SÞ, Jane Holl Lute, viðurkennir að kynferðisofbeldi sé víðtækt innan stofnunarinnar. „Við höfum átt við vandamál að stríða, sennilega síðan fyrst var farið að sinna friðargæslu,“ sagði hún. „Mér skilst að þetta sé annaðhvort vandamál eða hugsanlegt vandamál í hverri einni og einustu för sem við förum í.“

Ráðstefna um kynferðislegt ofbeldi friðargæsluliða verður haldin í New York í Bandaríkjunum á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×