Erlent

Kastró of veikur til að mæta í eigin veislu

Fídel Kastró t.v. ásamt bróður sínum Raúl Kastró, sem stjórnar landinu í fjarveru bróður síns.
Fídel Kastró t.v. ásamt bróður sínum Raúl Kastró, sem stjórnar landinu í fjarveru bróður síns. MYND/AP

Fídel Kastró, leiðtogi Kúbu sem kominn er til ára sinna, olli hundruðum aðdáenda sinna vonbrigðum sem höfðu komið um langan veg til þess að vera við hátíðarhöld vegna áttræðisafmælis Kastrós. Skeyti frá honum var lesið við upphaf fimm daga afmælisveislu til heiðurs forsetanum.

Kastró sagði að læknar hans ráðlegðu honum frá því að koma fram opinberlega, ástand hans leyfði það ekki. "Kæru vinir sem hafið veitt mér þann heiður að heimsækja land okkar, ég harma það að hafa ekki sjálfur getað þakkað ykkur og faðmað hvert og eitt ykkar," sagði í yfirlýsingu Kastrós.

Leiðtoginn kúbverski hefur ekki sést opinberlega, eingöngu á myndum og myndböndum síðan tilkynning frá honum var lesin upp þann 31. júlí, þess efnis að hann eftirléti bróður sínum stjórnartaumana um sinn, meðan hann jafnaði sig eftir skurðaðgerð vegna innvortis blæðinga. Nánari upplýsingar um líkamlegt ástand og læknismeðferð Kastrós eru geymd tryggilega með huldustu leyndarmálum kúbverska ríkisins.

Kastró varð áttræður þann 13. ágúst síðastliðinn en þá hátíðarhöldunum var þá frestað fram í desember vegna ástands hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×