Erlent

Stækkun Stansted hafnað af sveitarstjórn

Iceland Express flýgur til Stansted.
Iceland Express flýgur til Stansted. MYND/Haraldur Brink

Sveitarstjórnin í Uttlesford í SA-Englandi hefur hafnað áætlun breska flugvallafélagsins BAA um að fjölga flugferðum til og frá Stansted-flugvelli í nágrenni London. Flugvallafélagið segist munu áfrýja ákvörðun sveitarstjórnarinnar, sem byggir umhverfisrökum, meðal annarra hávaðamengun, loftmengun og hlýnun andrúmsloftsins.

Stansted-flugvöllur er þeim Íslendingum kunnur sem flogið hafa til Englands með Iceland Express, en það eru einkum lággjaldaflugfélög sem fljúga þangað.

Áætlun BAA var að lyfta því farþegaþaki sem verið hefur á Stansted, sem takmarkar umferð um einu flugbraut vallarins við 25 milljónir farþega á ári. Einnig vildi BAA leggja aðra flugbraut á flugvellinum en slíkt mætir nú vaxandi andstöðu frá nágrönnum flugvallarins, umhverfissamtökum og jafnvel frá flugfélögunum sjálfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×