Erlent

Íhuga lausn Palestínumanna úr ísraelskum fangelsum

Ísraelar hyggjast leysa Palestínumenn úr haldi sem setið hafa í ísraelskum fangelsum fyrir skæruliðaárásir til þess að koma til móts við kröfur Palestínumanna sem halda ísraelskum hermanni föngnum síðan í sumar, eftir því sem Reuters hefur eftir háttsettum stjórnmálamönnum í Tel Aviv.

Ísraelar hafa lengi hikað við að frelsa fanga sem sagðir eru hafa "blóði þvegnar hendur", og hafa borið fyrir sig mikla reiði sem blossað gæti upp í þjóðfélaginu.

Vopnaður armur Hamas-hreyfingarinnar auk fleiri hreyfinga Palestínumanna sem bera ábyrgð á ráninu á Gilad Shalit, vilja skipta á honum og 1.400 palestínskum föngum, af þeim 8.000-10.000 Palestínumönnum sem sitja í ísraelskum fangelsum.

Á lista Hamas eru aðallega konur, fangar undir lögaldri, gamalt fólk og veikt, sem og leiðtogar uppreisnarafla sem stóðu fyrir uppþotum árið 2000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×