Erlent

Tillaga Íraksnefndar: breytt hlutverk Bandaríkjahers

Íraski herinn á að gegna lykilhlutverki í Írak og Bandaríkjamenn aðeins að aðstoða, eftir því sem Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum.
Íraski herinn á að gegna lykilhlutverki í Írak og Bandaríkjamenn aðeins að aðstoða, eftir því sem Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum. MYND/AP

Óháð Íraksnefnd Bandaríkjaþings hefur ákveðið að leggja til að Bandaríkjaher hætti að berjast við uppreisnarmenn í Írak en verði frekar Íraksher til stuðnings, eftir heimildum Reuters fréttastofunnar. Nefndin hefur komist að niðurstöðu um málefni Íraks en mun ekki skýra frá henni fyrr en á miðvikudag í næstu viku.

Heimildarmenn Reuters segja enn fremur að nefndin hafi ákveðið að kalla til stórfundar leiðtoga af svæðinu, þar sem Bandaríkjamenn myndu ræða beint við Írana og Sýrlendinga um þeirra þátt í að hemja ofbeldið í Írak.

Sagt er að nefndin muni einnig leggja til að talsverður hluti Bandaríkjahers hverfi frá Írak en að brottflutningurinn verði ekki tímasettur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×