Kulajeff fékk ævilangt fangelsi 26. maí 2006 18:45
Dómstóll í Rússlandi dæmdi í morgun tsjetsjenskan hryðjuverkamann í ævilangt fangelsi fyrir aðild sína að gíslatökunni í barnaskólanum í Beslan í september 2004. 330 létust í þeim hildarleik, röskur helmingur þeirra börn. Fáir atburðir hafa vakið jafn hörð viðbrögð á síðustu árum og harmleikurinn í Beslan í Norður-Ossetíu í septemerbyrjun 2004. Þá réðist hópur tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna inn í barnaskóla bæjarins og tóku þar rúmlega ellefu hundruð gísla. Þriggja daga löngu umsátrinu lauk þegar rússneskar hersveitir réðust inn í skólann eftir að sprengja sprakk þar. 331 lést í blóðbaðinu sem fylgdi í kjölfarið, þar af 186 börn. Í morgun var dómur kveðinn upp yfir eina eftirlifandi gíslatökumanninum, Nur-Pashi Kulajeff. Rétturinn taldi sýnt að hann bæri ábyrgð á öllum dauðsföllunum og því bæri að dæma hann í ævilangt fangelsi. Dómarinn bætti því við að réttast væri að taka hann af lífi en þar sem dauðarefsingum er ekki beitt í Rússlandi væri það ekki hægt. Margir ástvina þeirra sem týndu lífi í Beslan fylgdust með dómsuppkvaðningunni og geðshræring þeirra var að vonum mikil. Mæður fórnarlambanna hafa allt frá því að fjöldamorðin voru framin gagnrýnt rússnesk stjórnvöld harðlega, annars vegar fyrir að að koma ekki í veg fyrir að svo stór hópur hryðjuverkamanna gæti flutt vopn og sprengjur í skólann, hins vegar fyrir harkalega framgöngu hermannanna sem þær telja að hafi frekar unnið skaða heldur en gagn. Þótt Nur-Pashi Kulajeff eigi eflaust sinn þátt í að svo hörmulega fór telja margir að rússnesk stjórnvöld noti réttarhöldin yfir honum til að beina athyglinni frá þeirra eigin mistökum.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira