Erlent

Loftið er lævi blandið í Dili

Stór hluti friðargæsluliðanna er frá Ástralíu.
Stór hluti friðargæsluliðanna er frá Ástralíu. MYND/AP

Á þriðja tug manna liggja í valnum á Austur-Tímor en þar hefur verið afar róstusamt undanfarna daga. Á meðal þeirra sem fallið hafa í bardögum eru tíu óvopnaðir lögreglumenn sem stjórnarhermenn töldu styðja uppreisnarhópa á eynni. Lík þeirra lágu eins og hráviði á götum höfuðborgarinnar Dili í morgun. Þá brunnu fimm börn inni í húsi innanríkisráðherra landsins sem æstur múgur brenndi til grunna í gærkvöld. Um tvö þúsund erlendir friðargæsluliðar eru komnir til þessa nýfrjálsa Asíuríkis til að stilla til friðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×