Erlent

Flestir gíslarnir lausir í Bagdad

Háskólastúdentar voru sendir heim úr háskólum í Bagdad í gær eftir fyrirskipun frá menntamálaráðherranum. Kennsla hefst ekki á ný fyrr en öryggi kennara og nemenda hefur verið tryggt betur.
Háskólastúdentar voru sendir heim úr háskólum í Bagdad í gær eftir fyrirskipun frá menntamálaráðherranum. Kennsla hefst ekki á ný fyrr en öryggi kennara og nemenda hefur verið tryggt betur. MYND/AP

Velflestir gíslarnir sem rænt var í menntamálaráðuneytinu í Bagdad í gær hafa nú verið látnir lausir eða frelsaðir af lögreglu. Innanríkisráðuneytið getur ekki staðfest að allir séu lausir því ekki er vitað hversu mörgum var rænt í gær. Fyrstu tölur í gær voru ýktar, þeir munu hafa verið nær 50 en 100.

Síðustu gíslarnir voru leystir úr haldi vopnaðra manna um miðnættisbil í nótt. Menntamenn og vísindamenn eru vinsæl skotmörk og fórnarlömb mannrána í Bagdad, sem veldur því að þessi hópur flýr nú land unnvörpum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×