Róstur gegn útlendingum í Kabúl 29. maí 2006 20:02
Að minnsta kosti átta manns hafa látið lífið í uppþotum í Kabúl, höfuðborg Afganistans, sem beinast gegn útlendingum í borginni. Tíu Íslendingar eru í Kabúl en ekkert amar að þeim, að sögn utanríkisráðuneytisins. Martröð vestrænna starfsmanna í Afganistan varð að veruleika eftir að bandarískur herbíll keyrði á fjölda farartækja á götum borgarinnar og varð fimm manns að bana. Niðurbæld reiði í garð hinna vestrænu herja sem nú hafa tögl og haldir í landinu braust út nær samstundis. Herbíllinn sem var valdur að slysinu var í bílalest og fólk á staðnum réðst á hana með grjótkasti. Bandarískir hermenn skutu upp í loftið og afganskir hermenn komu þeim til aðstoðar. Annað hvort þeir, eða bandarísku hermennirnir, skutu síðan inn í mannfjöldan með þeim afleiðingum að fjöldi manns varð fyrir byssukúlunum. Myndatökumenn sem komu á vettvang voru barðir. Í Kabúl eru tíu Íslendingar, en ekkert amar að þeim. Ólafur Ragnar Ólafsson, ráðgjafi hjá NATO, segir að Íslendingarnir fari lítið um götur borgarinnar nema í erindagjörðum vegna starfs síns. Ólafur er eini Íslendingurinn sem býr í Kabúl borg, af þeim Íslendingum sem þarna eru á vegum íslenskra stjórnvalda. Hinir níu starfa fyrir Flugmálastjórn og NATO á Kabúl flugvelli, sem er fyrir utan borgina og er vel varinn. Þarna hafa verið íslenskir starfsmenn Rauða krossins á undanförnum árum, en þeir eru engir núna. Ráðist var á stöðvar bandarísku hjálparsamtakanna CARE, og eldur lagður að þeim. Nú síðdegis höfðu um tvö þúsund manns safnast saman í miðbæ Kabúl. Hundruð manna til viðbótar eru við gatnamót nálægt hinu víggirta bandaríska sendiráði í borginni og hrópa þar vígorð.
Erlent Fréttir Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Fleiri fréttir Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Sjá meira