Blóðugur morgunn í Kabúl 29. maí 2006 10:15 Hópur fólks sem tók þátt í átökunum í morgun hleypur undan skothtríð lögreglu í Kabúl. MYND/AP
Til blóðugra átaka kom í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun eftir að bandarískur herbíll lenti í hörðum árekstri við leigubíl og ók síðan á brott. Rúmlega fimmtíu skæruliðar Talíbana munu hafa fallið í loftárás Bandaríkjamanna á mosku í suðurhluta landsins í morgun. Að minnsta kosti þrír létu lífið í árekstrinum í morgun. Fregnir hafa síðan borist af því að minnst einn hafi fallið í skotbardaga þegar til átaka kom. Óvíst er hver skaut hvern en bandarískar eða afganskar öryggissveitir munu hafa skotið á æstan mannfjöldann til að dreifa honum. Óeirðarseggir munu hafa brotist inn í búðir og látið greipar sópa og í einu tilviki dróu þeir erlendan ríkisborgara út úr bíl og börðu hann til óbóta. Fjölmargir mótmælendur gengu í morgun að forsetahöllinni í miðborg Kabúl og gerðu hróp að Karzai forseta. Fregnir hafa einnig borist af skothríð nálægt bandaríska sendiráðinu í borginni og var starfsfólk þegar flutt þaðan í öruggt skjól. Eitthvað mun þó hafa dregið úr mótmælunum eftir því sem liðið hefur á morguninn. Haft er eftir yfirmanni umferðarlögreglu í borginni að sést hafi til bandarískra hermanna þar sem þeir skutu á mótmælendur. Talsmaður Bandaríkjahers segir þó ekkert benda til þess en segir atburði morgunsins í rannsókn. Rúmlega fimmtíu skæruliðar talíbana eru sagðir hafa fallið í loftárás Bandaríkjamanna á mosku í Suður-Afganistan í morgun. Þetta er haft eftir héraðsstjóra sem segir að fjölmargir leiðtogar hafi fallið í árásinni. Talíbanarnir komu saman til fundar í moskunni þegar látið var til skarar skríða.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira