Erlent

Fráleitt að gera kjarnorkuárás á Íran

Það er fráleitt að íhuga að gera kjarnorkuárásir á Íran segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Í sjónvarpsviðtali í gær sagðist Powell jafnframt hafa ráðlagt George Bush að senda fleiri hermenn til Íraks, en á það hafi ekki verið hlustað. Colin Powell var í miðju hringiðunnar síðast þegar háværar raddir voru uppi um að stjórnvöld í Washington íhuguðu innrás inn í annað land. Powell kynnti öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna meintar sannanir þess að Írakar byggju yfir gereyðingavopnum og framhaldið þekkja allir. Nú er það Íran. Powell segist ekki trúa því að Bandaríkjamenn íhugi fyrir alvöru að gera kjarnorkuárásir á Íran. Nú sé rétt að allir aðilar dragi andann og taki því rólega.

Powell er líklega feginn að þurfa ekki að svara fyrir það sem er að gerast í Írak í dag, en hann segist hafa lagt sitt að mörkum til að koma í veg fyrir að ástandið yrði eins og það er. En ráðleggingar um stærri herafla í Írak féllu í grýttan jarðveg. Hann hafi ítrekað ráðlagt Tommy Franks þáverandi hershöfðingja að fara fram á meiri herafla, en á það hafi ekki verið hlustað.

Forseti Íraks hitti um helgina talsmenn uppreisnarhópa í Írak að máli og sagðist vongóður um að samningar um vopnahlé myndu nást innan skamms.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×