Erlent

Haglél á stærð við hafnarbolta

Hávaðarok og haglél á stærð við hafnarbolta hafa dunið yfir Texas um helgina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í veðurofsanum, en miklar skemmdir hafa orðið á fjölmörgum húsum og vegum. Þá varð töluvert eignatjón á litlum flugvelli í Gainsville, þar sem margar kyrrstæðar flugvélar fóru af stað í rokinu og skullu saman. Á stórum svæðum hefur verið alveg rafmagnslaust í dag og þannig fór rafmagn af meira en þúsund heimilum í Houston.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×