Lordi-torg í Rovaniemi 22. maí 2006 22:00 MYND/AP
Finnar ráða sér vart af kæti yfir árangri finnsku þungarokkshljómsveitarinnar Lordi í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva um helgina. Borgaryfirvöld í Rovaniemi, heimabæ hljómsveitarinnar, hafa ákveðið að nefna torg í miðri borginni í höfuðið á henni. Þetta er í fyrsta sinn sem Finnar vinna sigur í þessari keppni og hafa þeir oft hlotið fremur háðuglega útreið og jafnan rekið lestina. Það má því segja að Finnar hafi fengið uppreisn æru, og vel það, þegar skrímslarokkssveitin Lordi fór með sigur af hólmi í keppninni í Aþenu á laugardaginn, og það með fáheyrðum fjölda stiga sem voru nærri því 300. Finnar hafa fagnað árangrinum en voru margir hverjir með nokkrar áhyggjur af því hvað áhrif flutningur Lordanna á laginu Hard Rock Hallelujah myndi hafa á ímynd landsins. Bæði Tarja Halonen, forseti Finnlands, og Matti Vanhanen, forsætisráðherra, hafa óskað rokkurunum til hamingju með árangurinn. Borgarstjórinn í Rovaniemi í Lapplandi sagði í dag að borgaryfirvöld vildu heiðra þessa frægu syni sína með því að nefna torg í miðborginni eftir hljómsveitinni. Torgið verður hluti af nýrri borgarmynd sem er verið að skipuleggja en auk Lordanna státar Rovaniemi sig af raunverulegu heimili jólasveinsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Aron Can heill á húfi Innlent „Sorglega lítið eftir“ þegar sundkappinn var stöðvaður Innlent Ólíðandi að fá sektir aftur og aftur Innlent Tónleikar stöðvaðir vegna veikinda Arons Can Innlent Ljóst að stjórnarandstaðan græddi ekki á „kjarnorkuákvæðinu“ Innlent Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Erlent Svona vindmyllur vill ráðherra fá samþykktar ofan Gilsfjarðar Innlent Vínsalar látnir klára vakt eftir andlát í versluninni Innlent „Ef þú móðgaðist, þykir mér það leitt“ Innlent Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Erlent Fleiri fréttir Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Abrahamska dulspekitrúin sem heyr tilvistarstríð Setjast enn og aftur við samningaborðið en væntingar eru litlar Biden hraunar yfir Clooney: „Hann má fokka sér“ Segjast hafa fengið rangar líkamsleifar Efnt til mótmæla í Úkraínu vegna umdeildrar lagabreytingar Hundrað hjálparsamtök segja hungursneyð breiðast út um Gasa-svæðið Obama svarar ásökunum Trump og Gabbard um valdaránstilraun Ozzy Osbourne allur Hitinn víða yfir 50 stig og vatnsforðinn að þorna upp Brú skóf þakið af tveggja hæða rútu Ísraelar segja yfirlýsingu 28 ríkja úr takti við raunveruleikann Ríkisstjórn Bandaríkjanna og Harvard takast á fyrir dómstólum Sjá meira