Mótmæli í Beirút 2. desember 2006 07:45 Mikil spenna ríkir í Líbanon og stjórnarandstæðingar boða mótmæli næstu vikur og mánuði. MYND/AP
Þúsundir stuðningsmanna Hizbollah-hreyfingarinnar í Líbanon og annarra fylkinga, sem aðhyllast náin tengsl við Sýrland, gengu fylktu liði um götur Beirút í gær og kröfðust afsagnar forsætisráðherra landsins, Fuads Saniora. Sjálfur sat Saniora inni á skrifstofu sinni umkringdur hundruðum lögregluþjóna og hermanna. Ráðherrar Hizbollah sögðu sig úr ríkisstjórn Líbanons fyrir nokkrum vikum þar sem ekki var orðið við kröfum þeirra um að fá þriðjung ráðherra í stjórninni, sem hefði þýtt að Hizbollah fengi neitunarvald í stjórn landsins. Mótmælin í gær áttu að fara friðsamlega fram en af ótta við átök milli stjórnar og stjórnarandstöðu lokaði herinn öllum götum sem liggja að skrifstofu forsætisráðherrans. Hizbollah hefur boðað fleiri mótmælaaðgerðir næstu vikur og mánuði til þess að hrekja stjórnina, sem nýtur stuðnings Bandaríkjanna, frá völdum. Saniora sagðist hins vegar ætla að standa af sér storminn, en sagði í sjónvarpsávarpi á fimmtudagskvöld: „fullveldi Líbanons er ógnað og lýðræðið er í hættu.“ Saniora hvatti íbúa landsins til þess að sýna sér stuðning með því að flagga í gluggum og á svölum fána Líbanons, en reyndar hafði leiðtogi Hizbollah, Hassan Nazrallah, hvatt andstæðinga stjórnarinnar til þess að gera slíkt hið sama. Bæði Nazrallah og Saniora höfðu hvatt sínar fylkingar til þess að forðast allt ofbeldi. Stjórnin og stuðningmenn hennar telja ráðamenn í Sýrlandi standa á bak við aðgerðir Hizbollah og segja að Sýrlendingar vilji ná aftur því tangarhaldi sem þeir höfðu á stjórninni í Líbanon, sínu litla nágrannaríki. Hizbollah og bandamenn þeirra segja aftur á móti að núverandi stjórn landsins sé undir hælnum á Bandaríkjamönnum og hafi þar með glatað öllum rétti til þess að stjórna landinu. Hizbollah krefst þess enn að fá nægan hlut í stjórninni til þess að hafa neitunarvald. Bandaríkjastjórn virðist óttast að Líbanon taki sér stöðu við hlið Sýrlands og Írans sem andstæðingar bandarískra áhrifa í Mið-Austurlöndum. Spenna hefur verið mikil í Líbanon undanfarið, bæði vegna hernaðar Ísraelsmanna gegn Hizbollah í sumar og vegna morða á áhrifamiklum stjórnmálamönnum í Líbanon sem allir hafa verið hliðhollir Sýrlendingum.
Mest lesið „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir Innlent Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Erlent „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Innlent Segja fórnarlamb í Bakkakotsmálinu skilið eftir Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Fleiri fréttir Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Prinsinn fyrrverandi deildi trúnaðarupplýsingum með Epstein Kviknaði í minnisvarða um fórnarlömb eldsvoðans Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Japanir halda í kjörklefana Bandaríkjamenn vilji að stríðinu verði lokið í júní Birtu ekki baulið Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Höfnuðu kröfum Bandaríkjamanna Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Neytandi njósnakláms varð fórnarlamb Tugir látnir eftir sprengjuárás í Islamabad Flúði fílahjörð í kjaftinn á krókódíl Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Hik komið á lýtalækna í kjölfar bótadóms vegna kynleiðréttingar Rússar í vandræðum með netið í Úkraínu Umferðin í klessu vegna mikillar snjókomu í Danmörku Hátt settur leyniþjónustumaður skotinn og særður í Moskvu Fór í flugtak af akbraut og hafnaði úti á grasi Bandaríkjamenn og Rússar taka upp formleg samskipti á ný Hvetur til allsherjarverkfalls ef Trump reynir að stela þingkosningunum Grunaður um grófa spillingu í kjölfar birtingar Epstein-skjala Segir 55 þúsund hermenn fallna en margra sé saknað Vara við uppgangi Íslamska ríkisins Sjónvarpskona biður mannræningja um sönnun þess að móðir hennar lifi enn Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Vildi ekki hitta miðvinstriþingmenn í heimsókn til Washington Sendi Trump tóninn vegna Taívan Sjá meira