Erlent

Mikil þörf fyrir ódýrari vodka

Ekki hafa allir efni á svona fínum vodka.
Ekki hafa allir efni á svona fínum vodka. MYND/AFP

Nauðsynlegt er að hefja á ný ríkisframleiðslu á vodka í Rússlandi, sem seldur yrði mun ódýrari en sá sem einkarekin áfengisfyrirtæki framleiða. Þetta segir Osman Paragulgov, formaður samtaka áfengisframleiðenda í Rússlandi.

Ódýr „vodki fólksins“ eða „félagsvodki“, sem framleiddur yrði samkvæmt lögum og samþykktur af viðurkenndum yfirvöldum, gæti nefnilega bjargað lífi tugþúsunda Rússa, hefur fréttastofa BBC eftir Paragulgov.

Á síðasta ári létust 40.000 Rússar eftir að hafa drukkið vodkalíki, sem oft er eiturefni á borð við rúðuúða en selt sem vodki af óprúttnum einstaklingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×