Erlent

Bush lofar Maliki meiri hjálp

Nouri al-Maliki og George W. Bush Bandaríkjaforseti hlýðir á forsætisráðherra Íraks á blaðamannafundi að loknum fundi þeirra í Jórdaníu í gær.
Nouri al-Maliki og George W. Bush Bandaríkjaforseti hlýðir á forsætisráðherra Íraks á blaðamannafundi að loknum fundi þeirra í Jórdaníu í gær. MYND/AFP

George W. Bush Bandaríkjaforseti og Nouri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, voru sammála á fundi sínum í Jórdaníu í gær um að Írakar þurfi sem fyrst að taka að sér ábyrgð á öryggismálum í landinu og þá gæti bandaríski herinn farið að hugsa til heimferðar.

Hins vegar létu þeir ekkert uppi um það hvernig þeir ætluðu sér að fara að því að gera íröskum öryggissveitum kleift að taka við af 140 þúsund manna her Bandaríkjanna.

„Hann er rétti maðurinn fyrir Írak,“ sagði Bush að loknum fundi þeirra, sem stóð í hálfa þriðju klukkustund. Bush sagði einnig að al-Maliki væri orðinn þreyttur á því „hve seinir við höfum verið að færa honum þau tæki sem hann þarf til þess að vernda írösku þjóðina“.

Í skjali frá Stephen Hadley, þjóðaröryggisráðgjafa Bandaríkjanna, sem dagblaðið New York Times birti á miðvikudag, kemur fram að Hadley hefur alvarlegar efasemdir um að al-Maliki ráði við það verkefni að taka við stjórn öryggismála af Bandaríkjamönnum. Annaðhvort skorti hann til þess allar forsendur eða þá að hann hreinlega vilji það ekki, þótt hann láti annað í veðri vaka í viðræðum við Bandaríkjamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×