Erlent

Læknar hafa grun um eitrun

Jegor Gaídar hann gegndi stöðu forsætisráðherra um hríð á meðan Boris Jeltsín stjórnaði Rússlandi.
Jegor Gaídar hann gegndi stöðu forsætisráðherra um hríð á meðan Boris Jeltsín stjórnaði Rússlandi. MYND/AFP

Jegor Gaidar, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, liggur veikur á sjúkrahúsi í Moskvu, þó ekki í lífshættu, en grunur leikur á að hann hafi orðið fyrir eitrun. Gaidar veiktist heiftarlega í Írlandi í síðustu viku, daginn eftir að Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari, lést í London.

Í líkama Gaidars hafa læknar ekki fundið neina „eðlilega orsök eitrunarinnar og þeim hefur ekki tekist að finna neitt náttúrulegt efni sem þeir þekkja,“ sagði Valery Natorov, aðstoðarmaður læknanna í Moskvu í gær, um orsakir veikindanna.

Rannsóknin á láti Litvinenkos í London heldur áfram af fullum krafti.

Geislamengun hefur fundist á tólf stöðum í London og nágrenni og grunur leikur á hugsanlegri geislamengun á tólf stöðum til viðbótar í tengslum við rannsóknina á láti Alexanders Litvinenkos, að því er John Reid, innanríkisráðherra Breta, upplýsti í gær.

Leitað var að geislamengun í fjórum farþegaflugvélum og þúsundir farþega sem hafa flogið með þeim hafa verið beðnir um að láta vita ef þeir fá vísbendingu um að þeir hafi orðið fyrir geislun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×