Erlent

Gefst upp á Hamas

Mahmoud Abbas
Mahmoud Abbas

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, ætlar ekki lengur að reyna að ná stjórnarmyndunarsamkomulagi við Hamas-hreyfinguna herskáu sem situr í meirihlutastjórn Palestínu.

Í staðinn segist hann ætla að funda með æðstaráði Frelsissamtaka Palestínu, PLO, og ákveða hvert framhaldið verður. Abbas hefur undanfarið reynt að mynda stjórn með Hamas í tilraun til að binda enda á refsiaðgerðir Vesturlanda og endurvekja friðarviðræður Palestínumanna við Ísrael.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×