Erlent

Hópur svína át lítinn dreng

Þriggja ára drengur lést þegar hópur svína réðst á hann í útjaðri höfuðborgar Indlands, Delí, og banaði honum. Þetta kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC.

Drengurinn eigraði burt heiman frá sér meðan fjölskylda hans tók sér hádegisverðarhlé. Þegar móðir hans hóf leit að honum sá hún svín nágranna síns japlandi á einhverju og þekkti þar rifrildi úr fötum sonar síns, að sögn lögreglu. Konan henti grjóti í svínin, en þau réðust þá gegn henni. Hún æpti upp yfir sig og komu nágrannar henni þá til bjargar, en drengurinn var látinn.

Eigandi svínanna hefur verið handtekinn, sakaður um manndráp af gáleysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×