Börn mótmæltu við höfuðstöðvar SÞ á Gaza 11. maí 2006 23:00 MYND/AP
Tugir palestínskra barna reistu tjald fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á Gaza-svæðinu í dag til þess að mótmæla því sem þau kalla efnahagslegt umsátur um palestínskt land. Efnahagur palestínsku heimastjórnarsvæðanna er í raun hruninn, eftir að Bandaríkin og Evrópusambandið hættu efnahagsaðstoð við ríkisstjórn Hamas, og Ísraelar hættu að skila 55 milljón dollurum sem þeir innheimta, mánaðarlega, í tollum og öðrum gjöldum, fyrir palestínsku heimastjórninni. Börnin sem mótmæltu fyrir framan höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna, á Gaza, í dag, báru spjöld þar sem þau báðu um aðstoð. Sum höfðu líka málað slagorð á líkama sinn. Heimastjórnin hefur ekki getað greitt yfir 160 þúsund opinberum starfsmönnum laun sín í marga mánuði. Fólk hefur því þurft að ganga á sparifé sitt, eða fá lán, til þess að draga fram lífið. Kaupmenn þurfa að kaupa út á krít, bensínstöðvar hafa ekkert eldsneyti og kennarar eru að fara í verkfall, vegna ógreiddra launa. Starfsmenn alþjóðlegra hjálparstofnana segja að heilbrigðiskerfið sé að hruni komið, og þoli ekki þetta ástand lengur. Lífið hefur löngum verið Palestínumönnum erfitt, en hjálparstofnanirnar segja að nú keyri um þverbak. Mörgum finnist sem umheimurinn hafi snúið baki við þeim, og það ríkir vonleysi meðal almannings. Það kemur auðvitað ekki síst niður á börnunum, sem þurfa bæði að búa við mikinn skort, og upplifa vonleysi og örvæntingu foreldranna, sem ekki geta séð börnum sínum farboða. Ísraelar hafa ljáð máls á því að greiða hluta af því skattfé sem þeir hafa innheimt fyrir Palestínumenn, til þess að draga úr neyðinni. Þeir peningar megi þó ekki fara um hendur Hamas stjórnarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Innlent Fleiri fréttir „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Sjá meira