Erlent

Umsátrinu lokið

Ísraelski herinn hefur dregið lið sitt til baka frá bænum Beit Hanoun á Gazaströndinni eftir sex daga langt umsátur. Fimmtíu Palestínumenn og einn Ísraeli liggja í valnum eftir umsátrið.

Ísraelar skilja eftir sig sviðna jörð í Beit Hanoun, þar stendur varla steinn yfir steini eftir linnulausar árásir undanfarinna daga. Ísraelsk stjórnvöld segja aðgerðirnar hafa verið nauðsynlegar til að uppræta eldflaugaárásir palestínskra skæruliða yfir landamærin en eins og fyrri daginn bitnaði skothríðin á þeim sem síst skyldi. Af þeim fimmtíu palestínumönnum sem týndu lífi í árásunum voru sextán saklausir borgarar. Margir þeirra sem lögðu á flótta komu að heimilum sínum í algerri rúst. Á einni af moskum bæjarins stendur einungis eftir bænaturninn en þar leituðu nokkrir skæruliðanna skjóls. Þegar konur úr bænum reyndu að koma þeim til aðstoðar létu ísraelskir hermenn rigna yfir þær kúlum sínum. Jarðarfarir fjölmargra fórnarlamba umsátursins voru haldnar í dag og óhætt er að segja að þar hafi geðshræringin verið mikil. Á meðan öllu þessu stendur freista leiðtogar Hamas og Fatah þess að mynda nýja þjóðstjórn. Líkur eru á að hana muni skipa ópólitískir embættismenn í stað Hamas-liða. Vonast er til þar með ljúki einangrun palestínsku heimastjórnarinnar og fjárstuðningur frá Vesturlöndum hefjist á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×