Erlent

Frakkar vilja tryggja Palestínumönnum fjárstyrk

Jacques Chirac, Frakklandsforseti (t.v.), og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, funduðu í París í dag.
Jacques Chirac, Frakklandsforseti (t.v.), og Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, funduðu í París í dag. MYND/AP

Frakkar ætla að nota áhrif sín á alþjóðavettvangi til að reyna að fá ríki og stofnanir til að veita Palestínumönnum fjárstyrk á ný. Þetta sagði Jacques Chirac, Frakklandsforseti, fyrir fund sinn með Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna, í París í dag.

Franska stjórnin hefur síðustu daga leitað leiða til að tryggja Palestínumönnum fjárstyrk án þess að það gagnist Hamas-liðum sem fara fyrir Heimastjórn Palestínumanna. Frakkar hafa einnig hvatt Hamas-liða til að afneita ofbeldismönnum og ódæðum þeirra og viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis.

Fyrr í þessum mánuði skáru Frakkar og önnur Evrópusambandsríki að fjárstyrk til Heimastjórnarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×