Dönsk ungmenni í djörfum leik 21. október 2005 00:01
Dönsk lestarfyrirtæki segja það sífellt færast í aukana að ungmenni stundi þann lífshættulega leik að standa sem lengst á lestarteinum þegar lest kemur æðandi. Á undanförnum þremur árum hefur fjöldi tilfella þar sem næstum hefur verið keyrt á fólk meira en tvöfaldast. Danska fréttablaðið Urban vakti athygli á málinu í gær og segir í frétt blaðsins að leikurinn gangi undir nafninu „kylling", eða „Kjúklingur". Ungmenni safnast saman við lestarteina og ögra hvert öðru til að standa sem lengst á teinunum á meðan lest nálgast. Hámarkshraði lesta í Danmörku er hundrað og áttatíu kílómetrar á klukkustund. Á heitustu sumardögum hefur þó þurft að lækka þann hraða niður í hundrað og tuttugu kílómetra á klukkustund á leiðum þar sem teinum hefur verið illa viðhaldið undanfarin ár. En sá hraðamunur gerir það svo sem ekkert minna hættulegt að standa fyrir framan níutíu tonna stállest. Ögrunarleikurinn lífshættulegi er dönskum lestarfyrirtækjum til ama og segir yfirmaður öryggismála hjá DSB við Urban-blaðið að þetta skapi sem dæmi ótta meðal lestarstjóra sem viti aldrei á hverju þeir eigi von. Hann segir ungmenninn leika sér með líf sitt því mjög erfitt sé að meta fjarlægð lestar á þetta miklum hraða. Dagblaðið Politiken skrifaði líka um málið í gær og segir að á aðeins þremur árum hafi orðið gríðarleg fjölgun á tilfellum þar sem lestum hefur „næstum verið ekið á fólk", eins og það er skilgreint í bókum lestarfyrirtækjanna. Árið 2002 voru slík tilfelli fimmtíu og fjögur en það sem af er þessu ári eru þau orðin hundrað tuttugu og fjögur. Í tuttugu og eitt skipti á þessu ári hefur lest verið ekið á manneskju. Bæði lestarfyrirtæki Danmerkur, DSB og Banedanmark íhuga nú kynningarherferð til að stemma stigu við þessum hættulega leik. Hugmyndin er að dreifa bæklingum til farþega og hengja upp veggspjöld þar sem staðreyndirnar „90 tonna stál" og „180 kílómetrar á klukkustund" eiga að koma skilaboðunum áleiðis, og fá dönsk ungmenni til að láta af háskaleiknum.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira