Gefa 20 milljónir til aðstoðar 21. október 2005 00:01 MYND/AP
Rauði kross Íslands ætlar að leggja tuttugu milljónir króna til neyðaraðstoðar í Pakistan, úr neyðarsjóði sínum. Ekki hefur verið veitt fé úr þeim sjóði síðan snjóflóðin féllu vestur á fjörðum og er það til marks um hversu alvarlegt ástandið er í Kasmír. Rauði kross Íslands hyggst jafnframt senda tvo starfsmenn til Pakistans. Í fyrstu sögðu pakistönsk yfirvöld að fórnarlömb skjálftans væru á bilinu eitt til tvö þúsund. Nú, tæpum tveimur vikum síðar, er komið í ljós að þau eru orðin áttatíu þúsund og óstaðfestar fregnir herma að hundruð, jafnvel þúsundir til viðbótar látist á hverjum degi úr kulda og vosbúð. Aðstæður eru þær erfiðustu sem hjálparstofnanir hafa þurft að takast á við. Hér má sjá flokk hermanna á leið upp í fjallaþorp sem engin leið er að komast til nema fótgangandi, með hjálpargögn í bakpokum. Þeir bera síðan þá sem mest eru slasaðir eða hjálparþurfi niður á börum. Á sjötta tug svona hópa eru að störfum, en það er eins og dropi í hafið - þrjár komma þrjár milljónir manna eru taldar heimilislausar og þar með í bráðri neyð. Það er byrjað að snjóa til fjalla og ef ekki tekst að margfalda hjálparstarfið á næstu dögum, gætu fórnarlömb skjálftans jafnvel orðið fleiri en flóðbylgjunnar miklu í Indlandshafi á annan í jólum, en þá fórust á þriðja hundrað þúsund manns. Sendiherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag áætlun um að senda allt að 1.000 hermenn til að vinna að neyðarhjálp á jarðskjálftasvæðunum. Rauði kross Íslands ákvað á fundi sínum í dag að veita 20 milljónir króna úr neyðarsjóði sínum til hjálparstarfs í Kasmír. Ríkisstjórn Íslands hefur þegar lagt fram átján milljónir króna, en útilokar ekki að við þá upphæð verði bætt. Sólveig Ólafsdóttir, sendifulltrúi Rauða krossins á Sri Lanka, er á leið til hamfarasvæðanna í Kasmír og verður komin þar til starfa um helgina.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk við Fairford Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira