Erlent

Mannræningjar slepptu blaðamanni

Rory Carroll, írski blaðamaðurinn sem mannræningjar tóku höndum í Írak í gær, hefur verið leystur úr haldi. Carroll var að koma út úr húsi þar sem hann hafði nýlokið viðtali við eitt fórnarlamba stjórnartíðar Saddams Hussein fyrir enska blaðið Guardian þegar byssumenn rændu honum. Þrír menn voru handteknir í kjölfarið en ekki hefur fengist staðfest hvort þeir tengist málinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×