Kosningum flýtt í Kanada 30. nóvember 2005 04:00 Martin rýfur þing. Paul Martin forsætisráðherra gengur ásamt eiginkonu sinni af fundi fulltrúa drottningar, Michaelle Jean, í Ottawa í gær með formlegt bréf um þingrof og boðun kosninga 23. janúar.
Paul Martin, forsætisráðherra Kanada, rauf í gær þing og boðaði kosningar þann 23. janúar, eftir að Kanadaþing samþykkti á mánudagskvöld vantraust á minnihlutastjórn hans. Tilefni vantraustsyfirlýsingarinnar var spillingarhneyksli sem háttsettir menn í Frjálslynda flokknum, flokki forsætisráðherrans, eru flæktir í og snýst um misnotkun fjár úr opinberum sjóðum. Leiðtogar stjórnarandstöðuflokkanna - Íhaldsflokksins, Nýja lýðræðisflokksins og Bloc Quebecois, flokks frönskumælandi Quebec-búa ¿ sem saman höfðu meirihluta á þingi, settu Martin í síðustu viku afarkosti sem hann féllst ekki á og því var efnt til vantraustsatkvæðagreiðslunnar. Martin vildi ekki fallast á að rjúfa þing í janúar og boða kosningar í febrúar. Stjórnarandstöðuleiðtogarnir sögðu Frjálslynda flokkinn rúinn siðferðilegum trúverðugleika til að stjórna landinu. Þessi niðurstaða þýðir að kosið verður til allra 308 sætanna á Kanadaþingi. Ríkisstjórn Martins mun sitja til bráðabirgða þangað til. Hún þýðir þar með að nú verður kosningabarátta háð yfir hátíðarnar, en að kosningar fari fram um hávetur í Kanada gerðist síðast fyrir 26 árum. Samkvæmt skoðanakönnunum nýtur Frjálslyndi flokkurinn smávægilegs forskots á Íhaldsflokkinn. Nýi lýðræðisflokkurinn er í þriðja sæti. Sömu skoðanakannanir benda til að Bloc Quebecois muni sópa til sín atkvæðum í Quebec en það gerir ósennilegt að hægt verði að mynda stöðuga meirihlutastjórn eftir kosningar. Stephen Harper, leiðtogi Íhaldsflokksins, yrði forsætisráðherra ef flokkur hans fengi flest atkvæði. Samskipti Kanadastjórnar við ráðamenn í Washington hafa verið stirð í stjórnartíð Martins, sem beitti sér gegn innrásinni í Írak og hafnaði þátttöku Kanadamanna í eldflaugavarnakerfi Bandaríkjamanna. Íhaldsmenn segjast myndu bæta samskiptin suður yfir landamærin en kanadískir kjósendur studdu annars almennt stefnu stjórnar Martins í Íraksmálum og öðrum utanríkismálum. Barátta Martins fyrir því að giftingar samkynhneigðra yrðu leyfðar um allt Kanada hefur hins vegar verið umdeildari, og hneykslismál í kringum misnotkun fjár úr sjóðum sem meðal annars áttu að styðja sérstaka "þjóðareiningaráætlun" í Kanada hefur grafið undan Frjálslynda flokknum. Minnihlutastjórn Martins tók við stjórnartaumunum fyrir aðeins 17 mánuðum, eftir að Frjálslyndi flokkurinn missti í kosningum þingmeirihlutann sem hann hafði áður.
Erlent Mest lesið Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Innlent „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Innlent Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Innlent „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Innlent Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Erlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Erlent Fleiri fréttir Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Margrét Þórhildur útskrifuð af sjúkrahúsi Krabbameinssjúkir gætu sloppið við lyfjameðferð Fjórir menn komnir út úr hellinum í Laos Flugumferð stöðvuð í München vegna mögulegs drónaflugs Buckingham-höll hafi fengið tölvupósta um misferli Andrews fyrir sex árum Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Sjá meira