Erlent

Eldur kviknaði og hjólbarði sprakk í lendingu

 

Rúmlega tvö hundruð og fimmtíu farþegum um borð í vél tælenska flugfélagsins Thai Airways brá heldur betur í brún þegar vélin lenti á flugvellinum í Melbourne í Ástralíu í morgun. Vélin lenti svo harkalega að einn hjólbarði sprakk og annar búnaður laskaðist, með þeim afleiðingum að eldur kviknaði á nokkrum stöðum í vélinni. Engin slys urðu á fólki en áhöfninni tókst að koma farþegum fljótt frá borði og slökkvilið slökkti eldinn á skömmum tíma. Loka þurfti flugvellinum í Melbourne í nokkrar klukkustundir vegna atviksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×