Frúarkirkjan í Dresden endurreist 30. október 2005 20:00
Eitthvert þekktasta ummerki sprengjuregnsins í Þýskalandi síðustu daga seinni heimsstyrjaldarinnar er frúarkirkjan í Dresden. Áratugum saman stóðu aðeins fáeinir steinar eftir og rústirnar lágu í hrúgu í miðri borginni. En nú hefur kirkjan verið endurreist. Fáir atburðir snerta gamla Þjóðverja jafndjúpt og sprengjuregnið í miðborg Dresdenar undir lok heimsstyrjaldarinnar, - og fá mannvirki eru jafngildishlaðið tákn atburðanna og frúarkirkjan. Dresden er þekkt fyrir fjölda íburðarmikilla og fallegra bygginga, listasöfn og sögulegar minjar. Í tvær aldir trónaði kúpull frúarkirkjunnar yfir öllu, allt þar til í febrúar 1945. Þá hrundi hún, í einhverri áköfustu sprengjuárás bandamanna á þýskar borgir, og hún brann til kaldra kola. Svona leit þetta út allt til ársins 1994: í miðri borginni var steinahrúga eins og sár á líkama þessa mikla menningarseturs. Þar lágu rústir þess sem eitt sinn var hin stolta frúarkirkja og aðeins stóð hluti af einum vegg ennþá uppi, eins og brotin sjálfsmynd þýsku þjóðarinnar. En árið 1994 hófst enduruppbyggingin: steinunum var raðað saman, þeir merktir og reynt að sjá hvernig nota mætti rústirnar í endurbyggingu. Tíu árum og tíu milljörðum síðar er frúarkirkjan aftur á sínum stað, meistaraverk byggingameistarans George Bähr er risið á nýjan leik. Fjöldi einstaklinga og fyrirtækja, ekki síst í Bandaríkjunum og Bretlandi, lagði hönd á plóginn og sextíu prósent byggingarkostnaðarins voru greidd með frjálsum framlögum. Sextíu þúsund manns voru svo við endurvígsluna í dag. Þjóðverjar fagna og leiðarahöfundur vikublaðsins die Zeit segir þennan dag hinn raunverulega þjóðhátíðardag Þjóðverja, því að þetta sé dagurinn þegar þeir hættu að þjást undan sjálfum sér.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira