Ísraelar hóta loftárásum 22. júní 2005 00:01
Ísraelski embættismaðurinn Eival Gilady, sem skipuleggur brottför Ísraela af Gaza-svæðinu, sagði í gær að þeir myndu beita loftárásum til að stöðva árásir Palestínumanna, jafnvel þótt þær kostuðu almenna borgara lífið. Hann sagði Ísraela þó helst vilja beita sér með nákvæmari hætti en þeir myndu ekki hika við að nota þyrlur og flugvélar til árása ef þeir teldu sig tilneydda. Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar leiðtogafundar þeirra Ariels Sharon og Mahmouds Abbas á þriðjudag, en andrúmsloftið á fundinum var stirt. Sharon hóf fundinn á því að átelja Abbas vegna aukins ofbeldis af hálfu uppreisnarmanna. Ofbeldi hefur vaxið jafnt og þétt síðan vopnahléssamkomulagið var gert í febrúar síðastliðnum. Ísraelar héldu áfram aðgerðum gegn samtökunum Heilagt stríð og handsömuðu ellefu uppreisnarmenn til viðbótar aðfaranótt miðvikudags. Eftir fundinn var Sharon ánægður með samkomulag um algera samræmingu milli ísraelskra og palestínskra stjórnvalda sem tryggja á að brottförin gangi vel fyrir sig, en hún á að fara fram eftir um tvo mánuði. Palestínumenn voru ekki jafn sáttir. Ahmed Qureia, forsætisráðherra Palestínu, sagði að honum loknum:"Í öllum þeim grunnmálefnum þar sem við vonuðumst eftir jákvæðum viðbrögðum voru þau engin." Palestínumenn fóru fram á að fá meiri hergögn fyrir palestínsk stjórnvöld í Gaza, að norðurhluti Vesturbakkans færi undir þeirra stjórn og að ferðaöryggi milli Vesturbakkans og Gaza yrði tryggt eftur brottförina. Ísrelar segja á hinn bóginn að Sharon hafi boðið mikið, en hann lofaði að afhenda Palestínumönnum stjórn tveggja bæja á Vesturbakkanum innan tveggja vikna, að sleppa fleiri föngum og að auka ferðafrelsi Palestínumanna inn í Ísrael. Þótt fundurinn hafi ekki gengið vel er ekki talið að friðarferlið sé í uppnámi.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira