Erlent

Konur í 40% stjórnarsæta

Sænsk yfirvöld íhuga nú að fylgja í fótspor Norðmanna og setja lög sem kveða á um að konur eigi að skipa minnst 40% stjórnarsæta í fyrirtækjum. Norðmenn hafa gefið frest til ársins 2007. Svíar telja þróunina ganga alltof hægt en sem stendur eru tæp 15% stjórnarmanna konur. Ef fyrirtækin taka sig ekki á af sjálfsdáðum þá þarf að ýta breytingunum áfram með öðrum hætti, segir dómsmálaráðherrann Thomas Bodström.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×