Tíminn að renna út 22. október 2005 00:01
Gríðarlegir kuldar á skjálftasvæðunum í Pakistan gera hjálparstarfi erfitt fyrir. Útlit er fyrir að einungis helmingur þeirra, sem misstu heimili sín í hamförunum, fái tjald til að gista í. Tíminn sem hjálparstarfsmenn hafa á skjálftasvæðunum í Pakistan er nú afar naumur. Vetur er innan seilingar á svæðinu við Himalaya-fjöllin og það þýðir að aðstæður fara versnandi dag frá degi, enda gríðarlegur kuldar í fjöllunum. Það gerir hjálparstarfi enn erfiðara fyrir. Samgöngur eru víða úr skorðum þar sem vegir hafa farið í sundur og brýr brotnað. Jan van de Moortele, fulltrúi neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna í Pakistan, segir útlitið framundan svart, ef ekki tekst að hraða hjálparstarfi og aðgerðum á skjálftasvæðunum. Talið er að tæplega áttatíu þúsund manns hafi látið lífið í jarðskjálftanum sem reið yfir fyrir tveimur vikum og að þrjár milljónir manna hafi misst heimili sín. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur skorað á allar aðildarþjóðir samtakanna að leggja sitt af mörkum til hjálparstarfsins. Talið er að um 200 þúsund tjöld verði komin til skjálftasvæðanna á næstu dögum, en það dugar þó einungis til þess að hýsa um helming þeirra, sem misstu heimili sín. Tveir Íslendingar eru á leið til hjálparstarfa í Pakistan. Alþjóða Rauði krossinn hefur sent Sólveigu Ólafsdóttur sendifulltrúa til hjálparstarfa á hamfarasvæðunum og er hún væntanleg til Islamabad á sunnudag. Þá heldur Jón Hafsteinsson, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður, áleiðis til Pakistan í byrjun næstu viku þar sem hann mun starfa við sjúkraflutninga á vegum Alþjóða Rauða krossins. Áætlað er að hann verði að störfum til 20. desember. Hann hefur áður starfað fyrir Alþjóða Rauða krossinn í Kosovo og Albaníu árið 1999 þar sem hann flutti mat og önnur hjálpargögn.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira