Erlent

Víetnami deyr úr fuglaflensu

Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann er sá fyrsti sem deyr af völdum veikinnar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust.

Maðurinn, sem var 35 ára, dó eftir að hafa borðað kjúkling með fjölskyldu sinni en aðrir hafa ekki kennt sér meins eftir átið. Frá því að fuglaflensu varð fyrst vart í Víetnam árið 2003 hafa 92 greinst með veiruna og 42 látist af hennar völdum. Sérfræðingar óttast að veiran geti stökkbreyst og borist á milli manna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×