Hátt í 400 handteknir í óeirðum í Frakklandi 7. nóvember 2005 12:15 Slökkviliðsmenn slökkva í bíl í Argenteuil, vestur af París, í gærkvöld. MYND/AP
Rúmlega 1400 bifreiðar voru brenndar og hátt í 400 manns voru handteknir í óeirðum í Frakklandi - elleftu nóttina í röð. Lögregla hefur átt í vök að verjast enda hefur hún bæði verið grýtt og skotið á hana. Fátt bendir til þess að stjórnvöldum í Frakklandi sé að takast að lægja öldurnar í úthverfum Parísar og reyndar víðar um landið. Tíu lögreglumenn særðust, þar af tveir alvarlega, þegar um tvö hundruð óeirðaseggir réðust gegn lögreglu og beittu til þess byssum og grjóti í Grigny, úthverfi Parísar, í gækvöld og nótt. Í Toulouse þurfti lögregla að að beita táragasi til að hafa hemil á æstum múgnum og þá kom einnig til átaka í Orleans, Rennes and Nantes. Lögregla segir óeirðagengi reyna að ögra lögreglumönnum og stofna þannig til átaka. Gengin séu farin að nota byssur og því óttist lögreglan að það endi með mannfalli í öðrum hvorum hópnum. Óeirðirnar hafa stigmagnast frá degi til dags í hverfum innflytjenda í París og víðar, en þær brutust út fyrir ellefu dögum þegar tveir ungir piltar létust af völdum raflosts í rafstöð þegar lögregla veitti þeim eftirför í Clichy-sous-Bois, úthverfi Parísar. Mönnum ber ekki þó ekki saman um hver sé raunveruleg ástæða uppþotanna. Sumir segja það aðgerðarleysi stjórnvalda í málefnum ungra innflytjenda en aðrir segja glæpaklíkur og gengi nýta sér ástandið og reyna að skapa glundroða. Þá er bent á að ummæli Nicolas Zarkozy innanríkisráðherra þar sem hann kallaði skemmdarvarga í úhverfum hyski hafi æst fólk enn meira upp. Þetta virðist þó ekki hafa bakað honum jafnmiklar óvinsældir og menn héldu því í skoðanakönnun sem birt er í franska dagblaðinu Le Parisien nýtur hann stuðnings 57 prósenta þjóðarinnar. Forseti Frakklands, Jacques Chirac, sagði á blaðamannafundi sem haldinn var í gær að það væri forgangsmál franskra stjórnvalda að koma á lögum og reglu í úthverfum Parísar. Þeir sem ýttu undir ofbeldi og ótta yrðu handsamaðir. Chirac sagði einnig, að nauðsynlegt væri að tryggja að allir nytu jafnra tækifæra og réttlætis svo hægt yrði að binda enda á óeirðirnar. Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada og Rússlandi hafa varað þegna sína við að fara til Parísar, sem er einn vinsælasti ferðamannastaður heims, vegna óeirðanna. Ferðamenn eru beðnir um að fara ekki á þá staði þar sem mótmælagöngur eru haldnar og ef fólk gæti mögulega frestað ferðum sínum til borgarinnar, væri það æskilegt.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira