Erlent

Ísraelar gera loftárásir á Gaza

AP

Sjö Palestínumenn létust í loftárás Ísraelshers á Gaza-svæðinu í kvöld. Samkvæmt fréttum frá Ísraelsstjórn voru þeir sem létust meðlimir í uppreisnarhópnum Íslamska-Jihad. Meðal þeirra sem létust var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna Íslamska-Jihad. Ekki hefur enn verið borin kennsl á hina sex sem létust. Vopnahlé milli Ísraels og Palestínu er nú í algjöru uppnámi og svo virðist sem þessir fornu fjendur séu enn eina ferðina komnir aftur á byrjunarreit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×