Erlent

Hafa engin samskipti við dómstólinn

Frá réttarhöldunum yfir Saddam og samverkamönnum hans áður en þeim var frestað í síðustu viku.
Frá réttarhöldunum yfir Saddam og samverkamönnum hans áður en þeim var frestað í síðustu viku. MYND/AP

Lögmenn Saddams Husseins segjast ekki munu hafa nein samskipti við dómstólinn sem réttar í máli hans þar til réttarhöldunum verður framhaldið í lok nóvember. Þeir vilji nefnilega ekki tefla lífi sínu í hættu en í síðustu viku var lögmaður eins af fyrrverandi samverkamönnum Saddams myrtur eftir að hafa verið rænt af skrifstofu sinni. Ríkisstjórn Íraks hefur fordæmt morðið og boðið fram aðstoð sína við að tryggja öryggi allra þeirra sem koma að réttarhöldunum. Lögmenn Saddams og samverkamanna hans hafa áður kallað réttarhöldin farsa og farið fram á að öllum ákærum verði vísað frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×