Erlent

Segja tengsl milli messusóknar og auðæfa

Tengsl eru milli messusóknar og auðæfa segja menn sem gerðu nýlega rannsókn.
Tengsl eru milli messusóknar og auðæfa segja menn sem gerðu nýlega rannsókn. MYND/AP

Það að sækja trúarlegar athafnir getur ekki aðeins göfgað sálina heldur einnig stuðlað að ríkidæmi.

Við tvöföldun á mætingu í trúarlegar athafnir jukust tekjur heimila um 9,1 prósent. Þetta kemur fram í rannsókn sem Tæknifræðistofnun Massachusette gerði.

Jonathan Gruber sem vann við rannsóknina, segir að svo geti verið að þeir sem trúi meira séu ekki eins stressaðir og hinir vegna daglegs amsturs. Þetta daglega amstur hamli árangri á vinnumarkaði og dregur úr líkum á endingarríku hjónabandi og fyrir vikið séu þeir farsælli. Það að lifa í samfélagi með fólki sem hefur sameiginlega trúarskoðun eykur líkur á að fólk sækji trúarlegar athafnir. Slíkar heimsóknir hafa áhrif á aukna menntun fólks, innkomu og dregur úr líkum á að viðkomandi þurfi á örorkubótum að halda.

Í rannsókninni var einblínt áhvítt fólk sem komið er yfir tuttugu og fimm ára aldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×