Erlent

Stjórnarskrá samþykkt í skugga voðverka

 

Al-Qaeda lýsti í dag ábyrgð á sprengjuárásunum á hótel í Bagdad í gær. Í miðju skot- og sprengjuárása í dag var greint frá því að mikill meirihluti Íraka hefði samþykkt nýja stjórnarskrá.

1999 bandarískir hermenn hafa farist í Írak. Þeir voru þó ekki fórnarlömbin í árásum dagsins í Bagdad, heldur börn: sjö ára gamal drengur var drepinn í árás sem beindist að bandarískum hervagni og tveir óbreyttir borgarar féllu í sprengjuárás nærri herútstöð. Á fjórða tug særðist í árásunum og skotárásum í dag.

Í árásum á tvö hótel í Bagdad í gær fórust tuttugu og fjörutíu særðust, allt Írakar. Þó að skotmörkin hafi verið bækisstöðvar erlendra fréttamanna var ekkert mannfall í þeirra röðum.

Niðurstöður í kosningu um nýja stjórnarskrá lágu loksins fyrir í dag:

Farid Ayar, yfirmaður óháðrar kjörstjórnar, greindi frá því að rúm 78% hefðu sagt "já" við stjórnarskránni, meðan rúm 21% hefðu hafnað henni.

Stjórnarskránni var hafnað í tveimur héruðum þar sem súnnítar eru í meirihluta. Talsmenn Sameinuðu þjóðanna segja að niðurstöðurnar séu réttar og hægt sé að treysta þeim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×