Erlent

Tæplega þúsund fangar teknir af lífi á 29 árum

Frá hinni svokölluðu dauðadeild, eða „death row", San Quentin fangelsisins í Bandaríkjunum.
Frá hinni svokölluðu dauðadeild, eða „death row", San Quentin fangelsisins í Bandaríkjunum.

Fjöldi þeirra sem teknir hafa verið af lífi í Bandaríkjunum síðan dauðarefsingin var tekin upp þar að nýju á áttunda áratugnum nálgast nú eitt þúsund. Í dag var 48 ára gamall maður, Willie "Flip" Williams að nafni, sem dæmdur var fyrir morð á fjórum mönnum og eiturlyfjasölu, tekinn af lífi með banvænni sprautu í Ohio-ríki. Hann varð þar með númer 988 í röð þeirra fanga sem aflífaðir hafa verið í Bandaríkjunum síðan lög sem leyfa dauðarefsingu voru samþykkt fyrir 29 árum, auk þess sem Williams var jafnframt sá átjándi sem tekinn er af lífi í Ohio síðan yfirvöld ríkisins ákváðu að lögleiða dauðarefsingu fyrir sex árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×