Erlent

Viðræður um myndun nýrrar stjórnar hófust í Póllandi í dag

Íhaldsmaðurinn Lech Kaczynski verður næsti forseti Póllands. Hann sigraði í forsetakosningum í gær og hyggst skera upp herör gegn spillingu í landinu. Flokkur hans fór einnig með sigur af hólmi í nýafstöðnum þingkosningum. Stjórnarmyndunarviðræður hófust í dag og gert er ráð fyrir að samningar náist um myndun hægristjórnar. Þá má búast við skattalækkunum og ýmsum aðgerðum til að sporna gegn atvinnuleysi. Nú er næstum fimmti hver vinnufær maður án atvinnu í Póllandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×