Reykingabann í Bretlandi? 24. október 2005 13:45
Ráðherrar bresku ríkisstjórnarinnar sitja nú á fundi, þar sem tekin verður ákvörðun um hvort banna eigi reykingar á öllum opinberum stöðum á Bretlandi. Heilbrigðisráðherrann Patricia Hewitt mun á fundinum leggja fram hugmyndir um algjört reykingabann fyrir félaga sína í ríkisstjórninni. Ef reykingabannið nær fram að ganga myndi það ná til allra öldurhúsa og skemmtistaða. Tillagan gerir þó ráð fyrir að í hverri byggingu mætti vera eitt reykherbergi, en þar yrðu ekki bornir fram drykkir. Upphaflega stóð til að byrja á að banna aðeins reykingar þar sem borinn er fram matur, en leyfa þær í einkaklúbbum og skemmtistöðum sem ekki selja mat. Ríkisstjórn Bretlands taldi það hins vegar ómögulegt í framkvæmd og því var ákveðið að stíga annað hvort skrefið til fulls eða ekki. Ljóst er að fundurinn í dag verður ekki átakalaus, því að margir innan ríkisstjórnarinnar eru andvígir algjöru reykingabanni. Sumir vilja jafnframt ganga enn lengra og taka út ákvæði um að leyfa reykingar í þar til gerðum herbergjum. Algjört bann við reykingum á opinberum stöðum er nú þegar í gildi á Írlandi og verður bráðlega lögleitt í Skotlandi og á Norður Írlandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira