Erlent

Þriðja tilfellið í Rússlandi

Dauð önd fannst í á í Svíþjóð um helgina. Hún drapst úr fuglaflensku en ekki er ljóst hvort um H5N1 afbrigðið er að ræða.
Dauð önd fannst í á í Svíþjóð um helgina. Hún drapst úr fuglaflensku en ekki er ljóst hvort um H5N1 afbrigðið er að ræða. MYND/AP

Fuglaflensa hefur greinst á ný í evrópska hluta Rússlands. Yfirvöld hafa staðfest að H5N1 stofn fuglaflensunnar hafi greinst í Tambov, fjögur hundruð kílómetra suðaustur af Moskvu.

Þetta er sá stofn fuglaflensu sem dregið hefur meira en sextíu manns til bana í fjórum ríkjum Asíu. Í síðustu viku greindist fuglaflensan í Tulahéraði, tvö hundruð kílómetra suður af Moskvu og grunur lék á smiti í Altai héraði sem liggur að Tulahéraði. Fuglaflensa hafði áður greinst í asíska hluta Rússlands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×