Erlent

Kaczynski næsti forseti landsins

Lech Kaczynski, næsti forseti Póllands.
Lech Kaczynski, næsti forseti Póllands. MYND/AP

Lech Kaczynski verður næsti forseti Póllands, en þegar 91 prósent atkvæða í forsetakosningum um helgina hafa verið talin hefur hann fengið 55 prósent atkvæða en andstæðingur hans, Donald Tusk, 45 prósent.

Tusk hefur þegar viðurkennt ósigur sinn, en útlit var fyrir tvísýnni baráttu þar sem fylgi þeirra mædlist nánast hnífjafnt fyrir kosningarnar. Með þessu hefur flokkurinn Lög og réttlæti, sem Kaczynski tilheyrir, tryggt sér bæði forseta- og forsætisráðherraembættið í Póllandi þar sem flokkurinn fór einnig með sigur af hólmi í þingkosningum í síðasta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×