Erlent

Loka landamærum ef fuglaflensa berst milli manna

Frá alifuglabúi í Shanghai í Kína.
Frá alifuglabúi í Shanghai í Kína. MYND/AP

Kínverjar munu loka öllum landamærum að landinu ef upp kemur tilvik af fuglaflensu sem smitast beint á milli manna. Yfirmenn heilbrigðismála segja að björgun mannslífa muni hafa algjöran forgang, jafnvel þó að það muni verða efnahag landsins til mikils trafala. Enda yrði kostnaður vegna huganlegs fuglaflensufaraldurs miklu meiri en tap vegna allra forvarnaraðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×