Erlent

Stefnir á Flórída

MYND/AP

Meirihluti íbúa Florida Keys eyjaklasans hefur neitað að yfirgefa heimili sín, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir yfirvalda vegna fellibylsins Wilmu, sem hefur styrkst á ný og nær þar landi upp úr hádeginu í dag.

Öllum áttatíu þúsund íbúunum var fyrir helgina ráðlagt að hafa sig á brott, en í morgun höfðu aðeins um sex þúsund manns farið. Wilma styrktist á nýjan leik í nótt og er aftur orðinn þriðja stigs fellibylur. Reiknað er með að hún haldi styrk uns hún nær landi og verði því öflugri en fellibylurinn Charley, sem reið yfir Flórída í fyrra og olli miklu tjóni. Wilma lagði um helgina þúsundir heimila í rúst í Mexíkó og minnst sjö manns létust þar af hennar völdum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×